Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í september 2014

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar nú í september eru komnar á vef okkar. Þegar niðurstöðurnar sem nú birtast urðu til á miðnætti aðfaranótt 13. september var búið að skila skýrslum fyrir síðastliðinn mánuð frá 89% þeirra 580 búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 21.087,2 árskúa á fyrrnefndum búum, síðastliðna 12 mánuði, var 5.743 kg en var 5.745 kg við lok mánaðarins á undan. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum búum var 40,8 og hafði þeim fjölgað um 0,4 frá næstliðnu uppgjöri.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var á búi Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal en það bú var í öðru sæti listans fyrir mánuði. Þar var meðalnytin nú 7.946 kg eftir árskú. Næsta bú í röðinni var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd, búið sem sat efst fyrir mánuði, en þar var reiknuð meðalnyt nú 7.861 kg eftir árskú. Þriðja búið við þetta uppgjör og einnig í þriðja sæti fyrir mánuði, var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd með reiknaða meðalnyt 7.711 kg á árskú. Í fjórða sæti nú í september var Félagsbúið á Espihóli í Eyjafjarðarsveit en þar var meðalnytin 7.619 kg á árskú. Fimmta búið í röðinni að þessu sinni, sama og fyrir mánuði síðan var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði. Meðalnytin þar var 7.601 kg eftir árskú. Á 38 búum reiknaðist meðalnytin nú 7.000 kg eða meiri en þau voru 41 við næstliðið uppgjör.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Agla 361 (f. Þrasi 98052) í Viðvík í Skagafirði, sama kýrin og stóð efst við lok ágúst, en nyt hennar var 13.208 kg. Önnur kýrin í röðinni að þessu sinni var Flóra 1294 (f. Náttfari 00035) í Flatey á Mýrum í Hornafirði en hún var einnig í þessu sama sæti við seinasta uppgjör. Nyt hennar sl. 12 mánuði var 12.722 kg. Þriðja nythæsta kýrin nú við lok september var Bomba 157 (f. Indriði nr. 94 undan Fonti 98027) en hún var fjórða á þessum lista við lok ágúst. Nyt Bombu sl. 12 mánuði nam 12.377 kg. Sú kýr sem nú var nr. 4 á listanum, Gína 1049 (f. Sveppur 98035) í Þverholtum á Mýrum vestra var í fimmta sæti fyrir mánuði. Nyt hennar að þessu sinni var 12.075 kg. Fimmta kýrin við septemberuppgjörið en sú þriðja í röðinni við lok ágúst var var Gola 970 (f. Hjarði 06029) á Gili í Skagafirði og mjólkaði hún 11.870 kg sl. 12 mánuði. Alls náðu 21 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti aðfaranótt 13. okt. að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum en fyrir mánuði voru þær 13. Af þessum hópi mjólkuðu 4 yfir 12.000 kg eins og sjá má á undanfarandi upptalningu nythæstu kúnna og þar af náði sú efsta að lyfta sér vel yfir 13.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk