Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum maí

Blesi frá Búvöllum í Aðaldal
Blesi frá Búvöllum í Aðaldal

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum maí hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til nokkru eftir hádegi þann 11. júní, höfðu skýrslur borist frá 536 búum. Reiknuð meðalnyt 24.841,6 árskúa á þessum búum, var 6.332 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 46,4. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og marga síðustu mánuði, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði að jafnaði 8.801 kg. á tímabilinu sem um ræðir. Annað búið í röðinni var einnig hið sama og undanfarið, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalkýrin skilaði 8.620 kg. á tímabilinu. Þriðja búið á listanum, Hvanneyrarbúið í Andakíl í Borgarfirði, var í fimmta sæti fyrir mánuði síðan, en þar mjólkaði meðalárskýrin 8.363 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða búið að þessu sinni, hið sama og fyrir mánuði, var bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum í hinum forna Gnúpverjahreppi, þar sem hver árskýr skilaði að jafnaði 8.347 kg. á tímabilinu. Fimmta búið við uppgjör maímánaðar en í þriðja sæti fyrir mánuði, var bú Jakobs Smára Pálmasonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.332 kg.  

Nythæsta kýrin við uppgjör maímánaðar en önnur í röðinni seinast var Dúna 464 (f. Muni 10018) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði sem mjólkaði 14.061 kg. síðustu 12 mánuðina. Næst henni en í þriðja sæti við lok apríl var Surtla 695 (f. Gæi 09047) á Moldhaugum í Kræklingahlíð við Eyjafjörð en sú kýr mjólkaði 13.744 kg. á 12 mánaða tímabili. Þriðja nythæsta kýrin nú við lok maí var Útrás 331 á Skíðbakka í Austur-Landeyjum en nyt hennar reyndist vera 13.416 kg.

Alls náðu 81 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir maí hafði verið skilað frá nokkru eftir hádegið þ. 11. júní, að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 17 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og af þeim náðu sjö að mjólka meira en 13.000 kg. síðustu 12 mánuðina. Ein af síðastnefnda hópnum mjólkaði yfir 14.000 kg. eins og fram kemur í upptalningu allra nythæstu kúnna hér á undan.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk