Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í júní 2015

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar fyrir júní eru nú orðnar aðgengilegar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður sem nú birtast urðu til laust fyrir hádegi þann 13. júlí var búið að skila skýrslum fyrir júní frá 90% búanna sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 22.325,7 árskúa á fyrrnefndum 90% búanna, var 5.737 kg sl. 12 mánuði. Meðalfjöldi árskúa á þessum búum við uppgjörið nú var 42,9. Enn má ítreka að þær niðurstöður sem nú birtast koma frá 90% skýrsluhaldara og hafa ber það í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Áður en lengra er haldið verður að geta þess að vegna sumarleyfa hefur skráning þeirra skýrslna sem sendar eru RML til skráningar tafist að einhverju leyti þannig að verið getur að einhver þeirra búa sem venjulega hafa verið með þeim efstu á uppgjörslistanum séu ekki hér með. Það bendir aðeins á tafirnar en hefur ekkert með afurðir á viðkomandi búum að gera. Biðjumst við velvirðingar á því. 

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum á þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá var á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var meðalnyt árskúnna að þessu sinni 7.811 kg. Annað búið núna var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem nytin var 7.708 kg eftir árskú. Þriðja var búið á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem meðalnytin reiknaðist 7.689 kg eftir árskú. Fjórða búið við uppgjör júnímánaðar var bú Arnars Bjarna og Berglindar í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar var nyt eftir hverja árskú 7.652 kg mjólkur. Fimmta búið við lok júní var Félagsbúið á Syðri-Grund í Grýtubakkahreppi þar sem hver árskýr skilaði 7.559 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Króna nr. 121 (f. 198 undan Stíg 97010) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði en hún mjólkaði 12.712 kg. síðustu 12 mánuði. Önnur í röðinni nú var Ausa 306 (f. Þverteinn 97032) í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en hún mjólkaði 12.611 kg á tímabilinu. Þriðja í röðinni að þessu sinni var Kólga 506 (f. Trutti 449 undan Stokk 01035) á Kotlaugum í Hrunamannahreppi en nyt hennar var 12.380 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða kýrin á listanum nú var Flaska nr. 883 (f. Bólstri 07011) í Garði í Eyjafjarðarsveit en hún skilaði 12.320 kg á síðustu 12 mánuðum. Sú fimmta nythæsta nú var kýr nr. 740 (f. Kappi 01031) á Espihóli í Eyjafirði. Nyt hennar nú var 12.049 kg.

Alls náðu 17 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum hafði verið skilað frá undir hádegi 13. júlí að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Sex þeirra náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk