Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni í febrúar 2016

Skari 14011
Skari 14011

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nýliðnum febrúar hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til um kl. 11:00 þ. 11. mars, höfðu skýrslur borist frá 95% þeirra 577 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 24.557,5 árskúa á þessum 95% búanna, var 5.970 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg tala frá því fyrir mánuði síðan var 5.931 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum fyrir febrúar hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,9 en var 44,6 fyrir mánuði. Minna má á að ekki er hér um að ræða 100% skil skýrslna og skoða ber niðurstöðurnar í samræmi við það.

Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var nytin 8.297 kg. Bú Péturs hefur verið í efsta sæti á þessum lista undanfarið. Annað í röðinni að þessu sinni var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalárskýrin skilaði 8.122 kg. Bú Pálma hefur verið í öðru sæti á þessum lista undanfarna mánuði. Hið þriðja í röðinni nú en fjórða seinast var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.067 kg síðustu 12 mánuðina. Fjórða búið við lok febrúar en hið þriðja fyrir mánuði var bú Félagsbúsins í Engihlíð í Vopnafirði þar sem meðalafurðir eftir árskú voru 7.881 kg. Fimmta búið í röðinni að þessu sinni var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellströnd í Dölum þar sem meðalnytin var nú 7.876 kg.

Kýrin Emma nr. 738 (f. Bolti 09021) í Keldudal í Hegranesi í Skagafirði var aftur nythæsta kýrin á uppgjörstímabilinu, skilaði nú 14.044 kg. Önnur í röðinni, líka í sama sæti og fyrir mánuði var Fiðla 1074 (f. Boli 0889, undan Goða 05025) á Gili í Skagafirði en nyt hennar reiknaðist nú 13.588 kg. Þriðja var kýr nr. 718 (f. Laufás 08003) á Innri-Kleif í Breiðdal en hún mjólkaði 12.494 kg síðustu 12 mánuði. Fjórða kýrin nú, en þriðja fyrir mánuði, var Ljóna nr. 501 (f. Framherji 07022) í Smjördölum í Flóa sem skilaði 12.391 kg. Fimmta í röðinni nú var Rauðsíða nr. 614 (f. Ófeigur 02016) í Garðakoti í Hjaltadal. Nyt hennar reyndist 12.274 kg undanfarna 12 mánuði.

Alls náðu 61 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir febrúar hafði verið skilað frá um kl. 11:00 þ. 11. mars, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Við seinasta uppgjör náðu 48 kýr því marki. Átta, af þessum 61 kú, náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg. Þar af skiluðu tvær meiri afurðum en 13.000 kg á síðustu 12 mánuðum og önnur þeirra fór yfir 14.000 kg markið.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk