Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni í maí 2016

Myrkvi 14007 frá Vestri-Reyni, undan Kambi
Myrkvi 14007 frá Vestri-Reyni, undan Kambi

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni fyrir maí síðastliðinn hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til laust eftir hádegið þ. 13. júní, höfðu skýrslur borist frá um það bil 91% þeirra 578 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 23.644,9 árskúa á þessum búum, var 6.102 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg tala fyrir apríl var 6.041 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skýrslum fyrir maí hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,9 en var 44,7 fyrir mánuði síðan. Rétt er að hafa í huga að skilin náðu ekki 100% og skoða ber niðurstöðurnar í samræmi við það.

Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var líkt og undanfarna mánuði á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var nytin 8.360 kg. Annað í röðinni, einnig hið sama og fyrir mánuði var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.331 kg síðustu 12 mánuðina. Þriðja búið nú en í fjórða sæti fyrir mánuði var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd í Dölum en þar voru meðalafurðir árskúnna 8.190 kg. Fjórða búið að þessu sinni en þriðja í röðinni í apríllok var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalárskýrin skilaði 8.115 kg. Fimmta búið við lok maí og hið sama og í fyrra mánuði var bú Björgvins Rúnars Gunnarssonar á Núpi á Berufjarðarströnd en þar voru meðalafurðir síðustu 12 mánaða 8.063 kg. Eins og sjá má á þessari upptalningu eru kunnugleg nöfn í efstu sætum listans. Búin sem raðast í sætin á eftir þessum eru einnig kunnugleg.

Nythæsta kýr síðustu 12 mánaða var Píla 556 (f. Pontíus 02028) í Hjallanesi 2 í Landsveit sem mjólkaði 12.424 kg. sl. 12 mánuði. Önnur í röðinni var Gola 970 (f. Hjarði 06029) á Gili í Borgarsveit í Skagafirði, sem mjólkaði 12.337 kg á tímabilinu. Þriðja kýrin reyndist vera Storma 1439 (f. Kaper 1386 undan Takti 06046) í Birkihlíð í Skagafirði en nyt hennar var 12.195 kg. Fjórða á listanum var Ljómalind 1038 (f. Boli 889 undan Goða 05025) á Gili í Borgarsveit í Skagafirði en hún skilaði 12.026 kg. nyt á tímabilinu. Fimmta að þessu sinni en í fyrsta sæti fyrir mánuði var Máney nr. 370 (f. Lykill 02003) á Steinsstöðum II í Öxnadal, en hún mjólkaði 11.951 kg.

Alls náðu 58 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir maí hafði verið skilað frá upp úr hádeginu þ. 13. júní, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Við seinasta uppgjör náðu 54 kýr því marki. Fjórar, af þessum 54 kúm, náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg. á tímabilinu.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk