Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn ágúst

Gráni frá Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, undan Tanna 15065 og Gránu 592.
Gráni frá Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, undan Tanna 15065 og Gránu 592.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar ágústmánuður hefur runnið sitt skeið, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar komið var fram yfir hádegi þann 12. september.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 456 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 125 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.307,7 árskúa á þessum 456 búum reyndist 6.408 kg. eða 6.400 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á því 12 mánaða tímabili sem uppgjörið nær yfir. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 53,3, óbreyttur fjöldi frá því fyrir mánuði.

Mest meðalnyt árskúa á uppgjörstímabilinu, síðustu 12 mánuðum var á búi Aðalbjargar Rúnar Ásgeirsdóttur í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, 8.965 kg. Næst í röðinni var bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi, þar sem meðalnytin reiknaðist 8.767 kg. eftir árskú. Þriðja að þessu sinni var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr skilaði 8.600 kg. mjólkur. Hið fjórða í röðinni var bú Guðrúnar og Óskars á Tannstaðabakka við Hrútafjörð en þar var meðalnyt árskúnna 8.497 kg. á því tímabili sem um ræðir. Í fimmta sæti varð bú Hrepphóla ehf. í Hrepphólum í Hrunamannahreppi þar sem meðalnyt árskúnna reyndist 8.391 kg.

Nythæsta kýrin á undanförnu 12 mánaða tímabili var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 15.728 kg. á síðustu 12 mánuðum. Önnur í röðinni varð Bára 523 (f. Sandur 07014) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.913 kg. á tímabilinu. Hin þriðja var Flauta 841 (f. Bakkus 12001) á Tannstaðabakka við Hrútafjörð en nyt hennar var 13.697 kg. Fjórða varð Dakota 1082 (f. Búálfur 15026) í Hólmi í Landeyjum sem skilaði 13.577 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta í röðinni að þessu sinni var Mía 536 (f. Ýmir 13051) á Búrfelli í Svarfaðardal sem mjólkaði á tímabilinu 13.493 kg.

Alls náðu 179 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá upp úr hádegi þann 12. ágúst, að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim skiluðu 48 nyt yfir 12.000 kg. og af þeim hópi mjólkuðu 16 meira en 13.000 kg. Ein þeirra mjólkaði talsvert á 16. þúsund kg. eins og fram hefur komið, sem er umtalsvert.

Meðalfjöldi kúa á þeim 125 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 28,0 nú við lok ágúst en árskýrnar á þeim búum voru að jafnaði 25,0. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 7.228,3 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.793 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, undanfarna 12 mánuði, var 254,4 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 747,3 dagar.

Athugið að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023