Máni frá Breiðumýri 1 í Reykjadal, sonur Mánadísar 629 og Madda 23022. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nánar til tekið nú að loknum marsmánuði, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir hádegi þess 13. apríl. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengillinn neðst í fréttinni vísar til.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 428 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.506,1 árskýr á búunum 428 var 6.701 kg. eða 6.978 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, apríl 2025 til mars 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 428 búum reyndist nú 57,3.
Mest meðalnyt árskúa að þessu sinni var á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem 31,6 árskýr skiluðu að meðaltali 8.744 kg. mjólkur á uppgjörstímabilinu. Næst á eftir var bú Kotakinnar ehf. í Lundi í Lundarreykjadal þar sem meðalnyt 37,7 árskúa reiknaðist 8.544 kg. fyrir undanfarna 12 mánuði. Þriðja búið að þessu sinni var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl þar sem meðalafurðir 64,5 árskúa reyndust 8.512 kg.
Nefna má hér eins og undanfarið að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár samfellt.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári á Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, upprunnin í Skollagróf, en við lok janúar síðastliðins hafði hún mjólkað samtals 15.525 kg. frá og með febrúar 2025 til og með janúar 2026. Önnur í röðinni hér er Branda 1053 (f. Sjóli 18006) í Stóru-Mörk 1 en hún mjólkaði samtals 14.717 kg. á tímabilinu febrúar 2025 til janúar 2026. Hin þriðja í röðinni er Óskadís 950 (f. Jón Forseti 807, dóttursonur Kola 06003 og sonarsonur Þyts 09078) sem mjólkaði 14.702 kg. á tímabilinu apríl 2025 til mars 2026.
Nú við lok febrúar hafa 32 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hafa alls níu náð 14.000 kg. og þar yfir á 12 mánuðum. Fyrrnefnd Húma 759 er síðan eina kýrin sem hefur náð skráðri 12 mánaða nyt yfir 15.000 kg. það sem af er þessu ári.
Meðalfjöldi kúa á þeim 112 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 29,8 við lok febrúar en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 28,4 á umræddu tímabili. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.415,1 kg. á þeim 12 mánuðum sem uppgjörið nær til.
Meðalfallþungi 9.260 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur bárust frá, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 262,6 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 735,8 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar uxu 35 gripir að meðaltali 714 g. á 485 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali 679 g. á 537 dögum. Þriðja á listanum nú var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 522 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 654 g. á dag.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 34 gripir vigtuðu að meðaltali 384,4 kg. eftir 81 vaxtardaga. Næstmestur var meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, 378,1 kg. á 24 gripum, eftir 537 vaxtardaga. Þriðja búið í röðinni var á Ytra Hólmi I þar sem fallþungi 11 gripa var að jafnaði 373,7 kg. eftir 720 vaxtardaga.
Sjá nánar hér.