Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuði, við endaðan mars, að liðnu jafndægri á vori, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar komið var fram um hádegi þann 11. apríl. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en rétt er að benda á að mun meiri upplýsingar er að finna í töflum þeim sem tengill er í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 432 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 114 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.063,0 árskúa á búunum 432 var 6.524 kg. eða 6.779 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 432 búum var 55,7.
Mest meðalnyt árskúa nú var, líkt og fyrir mánuði síðan, á búi Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin skilaði 8.712 kg. að meðaltali síðustu 12 mánuði. Annað í röðinni að þessu sinni, eins og við síðasta uppgjör, var bú Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.596 kg. Þriðja í röðinni, einnig líkt og við síðasta uppgjör, var bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi en þar mjólkaði meðalárskýrin 8.541 kg. á uppgjörstímabilinu.
Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Skerja 638 (f. Spennir 12027) í Kolsholtshelli í Flóa sem mjólkaði 15.066 kg. síðustu 12 mánuði. Næst henni í röðinni að þessu sinni var Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem mjólkaði 14.705 kg. á umræddu tímabili. Þriðja reyndist vera kýr nr. 883 (f. Ýmir 13051) í Syðri-Knarrartungu á Snæfellsnesi, sem mjólkaði 13.634 kg. síðustu 12 mánuði.
Alls náðu 163 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir síðasta mánuð hafði verið skilað frá um hádegisbil þann 11. apríl, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim hópi mjólkuðu 41 kýr 12.000 kg. og þar yfir. Enn fremur skiluðu 10 þeirra yfir 13.000 kg. nyt á tímabilinu. Af þeim síðasttöldu mjólkuðu tvær meira en 14.000 kg. og önnur þeirra yfir 15.000 kg. eins og kemur fram hér á undan.
Ef svo fer fram sem horfir, þá mun verða breyting á því hvernig birting á hæstu 12 mánaða nyt verður og þá vonandi ekki síðar en með næsta mánaðaruppgjöri. Til gamans fylgir hér með listi yfir þær kýr sem náð hafa mestri 12 mánaða nyt við síðustu 12 uppgjör skýrsluhaldsins.
Á listanum mun vera að finna hæstu skráðu 12 mánaða nyt hér á landi, sem kom fram við uppgjörið í lok nóvember sl., þegar kýrin Klauf 2487 í Lambhaga á Rangárvöllum náði næstum 16.000 kg. nyt á því uppgjörstímabili.
Meðalfjöldi kúa á þeim 114 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 28,6 nú við lok mars en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 27,5 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.509,8 kg. á undanförnum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.544 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,0 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 732,0 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum var mestur, var Reykir í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn varð 494 daga gamall og óx að meðaltali 654 g. á dag. Næst í röðinni var búið á Efstalandi í Öxnadal þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali um 617 g. að meðaltali á 467 dögum. Þriðja búið á þessum lista að þessu sinni er Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem 607 daga gamlir gripir náðu að vaxa að meðaltali 590 g. á dag. Þessi röð er óbreytt milli mánaða.
Þegar litið er á mestan meðalfallþunga sláturgripa var hann mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem skrokkþungi 807 daga gamalla gripa var að meðaltali 380,6 kg. Næst í röðinni var Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem meðalfallþungi 607 daga gamalla gripa reiknaðist 368,8 kg. Þriðja efsta búið var síðan Minni-Mástunga í hinum forna Gnúpverjahreppi þar sem skrokkþungi 641 dags gamalla gripa var 364,8 kg. að jafnaði. Hér gildir hið sama og varðar töfluna yfir meðalvöxt sláturgripa, að röð hinna þriggja efstu búa er óbreytt frá síðasta uppgjöri.
Aftur má minna á að það sem hér hefur verið rakið er aðeins lítið brot af því sem er að finna á þeim listum sem birtir eru.
Þess er vert að geta hér að endingu að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.
Sjá nánar:
rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025