Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í ágúst

Dælir frá Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit, undan Jörfa 13011 og Dælu 474, dóttur Bamba 08049.
Dælir frá Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit, undan Jörfa 13011 og Dælu 474, dóttur Bamba 08049.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú í ágúst, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru um miðjan dag þann 13. september.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 500 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 120 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.598,7 árskúa á búunum 500 var 6.363 kg eða 6.473 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum 500 búum var 49,2.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði reiknaðist hæst líkt og undanfarið, á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, 9.070 kg. Næst í röðinni eins og fyrir mánuði var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt eftir árskú var 8.713 kg. á tímabilinu. Þriðja, sama og fyrir mánuði, var bú Sigurðar og Fjólu í Skollagróf í Hrunamannahreppi þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.472 kg. á umræddu tímabili. Fjórða í röðinni nú var bú Guðjóns og Helgu á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi í Rangárvallasýslu þar sem nyt meðalárskýrinnar reiknaðist 8.331 kg. síðustu 12 mánuðina. Fimmta að þessu sinni reyndist vera bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal þar sem meðalárskýrin skilaði 8.237 kg.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Fórn 868 (f. Skalli 11023) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð, sem mjólkaði á tímabilinu 14.280 kg. Önnur var Abba 760 (f. Sjarmi 12090) í Litla-Dunhaga 1 í Hörgársveit sem skilaði 14.246 kg. á umræddu tímabili. Þriðja kýrin að þessu sinni var Merlin 2268 (f. nr. 2018, sonur Húna 07041 og dóttursonur Taums 01024), í Lambhaga á Rangárvöllum en nyt hennar reyndist 14.016 kg. á tímabilinu. Fjórða nythæst reiknaðist Lúsý 555 (f. Gustur 09003), einnig í Flatey eins og kýr nr. 1, en nyt Lúsýjar var 14.013 kg. síðustu 12 mánuði. Fimmta kýrin að þessu sinni var einnig í Flatey, en það var Reisn 1955 (f. nr. 1806, sonur Ára 04043 og dóttursonur Hjalla 04383, sonar Gilsungs (02022) og dóttursonar Dúra 96023), en hún mjólkaði 13.666 kg. síðustu 12 mánuðina.

Alls náðu 135 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá um miðjan dag þ. 13. september, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 38 meira en 12.000 kg. og af þeim náðu 10 kýr að mjólka meira en 13.000 kg. Fjórar þeirra skiluðu nyt yfir 14.000 kg. eins og sjá má hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,9 en árskýrnar þar voru að meðaltali 23,1. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.427,2 kg.

Meðalfallþungi 9.224 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 256,0 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 751,5 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk