Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í júní 2017

Laufi frá Kambsstöðum í Þingeyjarsveit
Laufi frá Kambsstöðum í Þingeyjarsveit

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum júní, hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til skömmu fyrir hádegið þann 11. júlí, höfðu skýrslur borist frá 551 búi. Reiknuð meðalnyt 25.162 árskúa á þessum búum, var 6.091 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði aukist um 22 kg. frá fyrra mánuði. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,2. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar skilaði 9.064 kg. af mjólk á tímabilinu. Annað búið í röðinni nú var bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalnytin reiknaðist 8.334 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja búið á listanum var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem árskýrin mjólkaði að jafnaði 8.243 kg. Fjórða búið í röðinni að þessu sinni var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem meðalárskýrin skilaði 8.185 kg. mjólkur. Fimmta búið var Félagsbúið á Syðri-Grund í Grýtubakkahreppi þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.044 kg á tímabilinu. Búin sem hér eru talin eiga það sammerkt að skýrslum um nyt þar hefur verið skilað jafnt og þétt undanfarið ár.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Ljóna 501 (f. Framherji 07022) í Smjördölum í Flóa en hún mjólkaði 12.763 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni var Pollýanna (f. Hegri 03014), á Brúsastöðum í Vatnsdal en nyt hennar var 12.422 kg. síðustu 12 mánuði. Þriðja reyndist Rósamunda 564 (f Spaði 10003) á Fossi í Hrunamannahreppi sem mjólkaði 12.312 kg. á umræddu tímabili.

Alls náðu 48 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir júní hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegi þ. 11. júlí, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim reiknuðust 9 hafa mjólkað yfir 12.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk