Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum apríl

Snúður frá Brún í Reykjadal, undan Tanna 15065 og Snældu 763. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Snúður frá Brún í Reykjadal, undan Tanna 15065 og Snældu 763. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú að loknum aprílmánuði, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggjast á skilum eins og þau voru skömmu eftir hádegi þann 11. maí.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 461 búi en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 124 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.129,6 árskúa á fyrrnefndum búum var 6.363 kg. eða 6.378 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 52,3.

Mest meðalnyt árskúa á síðastliðnum 12 mánuðum var á búi Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi þar sem árskýrin mjólkaði að meðaltali 8.934 kg. Annað í röðinni var Merkurbúið í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum en þar mjólkaði árskýrin að jafnali 8.901 kg. Þriðja að þessu sinni var bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi en þar reiknaðist meðalnyt árskúnna 8.485 kg. Fjórða búið að þessu sinni var bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem árskýrin mjólkaði að meðaltali 8.455 kg. á tímabilinu. Fimmta var bú Guðrúnar og Óskars á Tannstaðabakka við Hrútafjörð þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.326 kg. á umræddu tímabili.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum var kýr nr. 790 (f. Voði 14086) í Eystri-Leirárgörðum sem mjólkaði 13.343 kg. á þeim tíma. Næst henni kom kýr nr. 730 (f. Lúður 10067) á Stakkhamri á Snæfellsnesi en nyt hennar reyndist vera 13.399 kg. á umræddu tímabili. Þriðja að þessu sinni var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 13.328 kg. á síðustu 12 mánuðum. Hin fjórða nythæsta reyndist vera Skegla 665 (f. Kaktus 16003) í Geirshlíð í Flókadal í Borgarfirði sem skilaði 13.314 kg. mjólkur á tímabilinu. Fimmta í röðinni var Fata 2106 (f. Sjarmi 12090) í Skáldabúðum 2 í Gnúpverjahreppi hinum forna, en nyt hennar var 13.258 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Alls náðu 119 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir apríl hafði verið skilað frá upp úr hádegi hinn 11. maí, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim hópi skiluðu 27 kýr nyt yfir 12.000 kg. og sjö þeirra náðu nyt yfir 13.000 kg. Eins og fram hefur komið mjólkaði ein þessara sjö meira en 14.000 kg. á tímabilinu sem uppgjörið nær yfir.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,2 nú við lok apríl en árskýrnar þar voru að jafnaði 26,7. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.702,6 kg.

Meðalfallþungi 9.708 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 252,3 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 745,0 dagar.

 

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023