Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum janúar

Stallur frá Hvanneyri, undan Hillu 1901 og Kláusi 14031.
Stallur frá Hvanneyri, undan Hillu 1901 og Kláusi 14031.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn janúar, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru að morgni hins 11. febrúar.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 487 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 122 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.433,0 árskúa á búunum 487 reyndist 6.345 kg eða 6.379 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 50,2.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, 8.960 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt eftir árskú reiknaðist 8.717 kg. á tímabilinu. Þriðja að þessu sinni var bú Páls Jóhannssonar í Núpstúni í Hrunamannahreppi þar sem meðalárskýrin skilaði 8.502 kg. á nefndu 12 mánaða tímabili. Fjórða var bú Arnfríðar Jóhannsdóttur í Dalbæ 1, einnig í Hrunamannahreppi, þar sem meðalnyt árskúa reiknaðist 8.454 kg. Fimmta nú við lok janúar var bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóahreppi þar sem meðalnyt árskúanna reyndist 8.327 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Bára 523 (f. Sandur 07014) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði á tímabilinu 14.382 kg. Hið næsta henni var Skör 1003 (f. Flekkur 08029) í Hvammi í Ölfusi en nyt hennar reyndist vera 14.287 kg. á umræddu tímabili. Þriðja að þessu sinni var Ríkey 691 (f. Bingó 607, sonur Bamba 08049 og dóttursonur Flóa 02029) en hún mjólkaði 13.612 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða kýrin í röðinni var Snúra 546 (f. Dúllari 07024) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi en afurðir hennar voru 13.457 kg. á tímabilinu. Fimmta kýrin nú var Ljúfa 1311 (f. Skellur 11054) í Skáldabúðum 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mjólkaði alls 12.945 kg. síðustu 12 mánuði.

Alls náðu 137 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir janúar hafði verið skilað frá að morgni þess 11. febrúar, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 31 yfir 12.000 kg. á uppgjörstímabilinu. Af þeim hópi skiluðu fjórar meiri nyt en 13.000 kg. og tvær þeirra mjólkuðu yfir 14.000 kg. eins og fram hefur komið.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,6 en árskýrnar þar voru að jafnaði 24,8 við lok janúar. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 5.841,8 kg.

Meðalfallþungi 9.624 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 255,8 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 751,7 dagar.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022