Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum júlí

Sjóður frá Þverholtum á Mýrum. Faðir er Risi 15014 og móðir kýr nr. 2009 undan Stólpa 11011.
Sjóður frá Þverholtum á Mýrum. Faðir er Risi 15014 og móðir kýr nr. 2009 undan Stólpa 11011.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú í júlí, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru upp úr hádegi þ. 11. ágúst.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 493 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 118 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.307,6 árskúa á búunum 489 var 6.359 kg eða 6.394 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum 493 búum var 49,3.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði reiknaðist hæst á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, 9.044 kg. Næst í röðinni reyndist vera bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt eftir árskú var 8.569 kg. á tímabilinu. Þriðja var bú Sigurðar og Fjólu í Skollagróf í Hrunamannahreppi þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.325 kg. á umræddu tímabili. Fjórða að þessu sinni var bú Hákonar og Þorbjargar á Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit þar sem meðalárskýrin skilaði 8.267 kg. Fimmta á listanum að þessu sinni reyndist vera bú Rúts og Guðbjargar á Skíðbakka 1 í Landeyjum þar sem nyt árskúanna var 8.259 kg.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var líkt og fyrir mánuði, Merlin 2268 (f. nr. 2018, sonur Húna 07041 og dóttursonur Taums 01024), í Lambhaga á Rangárvöllum en nyt hennar reyndist 14.025 kg. á tímabilinu. Önnur nythæst við lok júlí var Reisn 1955 (f. 1806, sonur Ára 04043 og dóttursonur Hjalla 04383, sonar Gilsungs (02022) og dóttursonar Dúra 96023), í Flatey á Mýrum við Hornafjörð, en hún mjólkaði 13.930 kg. síðustu 12 mánuðina. Þriðja nythæsta kýrin var Skrúfa 1043 (f. Rjómi 07017) í Ártúnum í hinum gamla Rangárvallahreppi en hún mjólkaði 13.502 kg. undanfarna 12 mánuði. Fjórða kýrin í röðinni að þessu sinni var Abba 760 (f. Sjarmi 12090) í Litla-Dunhaga 1 í Hörgársveit sem mjólkaði 13.335 kg. á umræddu tímabili. Fimmta nythæst reyndist að þessu sinni Mía 356 (f. Ýmir 13051) á Búrfelli í Svarfaðardal sem mjólkaði 13.280 kg. á umræddu tímabili.

Alls náðu 114 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir júlí hafði verið skilað frá upp úr hádegi þ. 11. Ágúst, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 30 meira en 12.000 kg. og af þeim hópi náðu 10 kýr að mjólka meira en 13.000 kg. og enn fremur skal þess getið að ein þeirra kúa mjólkaði yfir 14.000 kg. eins og sjá mátti hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 27,2 en árskýrnar voru að meðaltali 23,6. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.347,6 kg.

Meðalfallþungi 9.126 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 255,6 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 752,2 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk