Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum maí

Hákon frá Skeiðháholti á Skeiðum, undan Ými 13051 og Kollu 1201 dóttur Fossdals 10040.
Hákon frá Skeiðháholti á Skeiðum, undan Ými 13051 og Kollu 1201 dóttur Fossdals 10040.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum maí, eru nú sýnilegar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru að morgni þ. 14. júní.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 503 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 116 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.849,8 árskúa á fyrrnefndum búum var 6.337 kg eða 6.411 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á búunum 503 var 49,4.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði reyndist mest á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, 8.933 kg. Næstmest var nytin á búi Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem hún reiknaðist 8.481 kg. á tímabilinu. Þriðja búið að þessu sinni var bú Rúts og Guðbjargar á Skíðbakka í Austur-Landeyjum þar sem meðalnyt árskúa var 8.472 kg. Fjórða í röðinni nú var bú Hákonar og Þorbjargar á Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit þar sem meðalárskýrin skilaði 8.342 kg. á umræddu tímabili. Í fimmta sæti sat bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem nyt árskúnna var að meðaltali 8.241 kg.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Merlin 2268 (f. nr. 2018, sonur Húna 07041 og dóttursonur Taums 01024), í Lambhaga á Rangárvöllum en nyt hennar var 13.671 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni var Mía 536 (f. Ýmir 13051) á Búrfelli í Svarfaðardal en hún mjólkaði 13.541 kg. Í þriðja til fjórða sæti yfir nythæstu kýrnar voru annars vegar Drífa 935 (f. Afli 11010) í Hólmi í Austur-Landeyjum og hins vegar Dimma 1190 (f. Hattur 11008) í Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi, en nyt þeirra reyndist hafa verið 13.095 kg. á síðustu 12 mánuðum. Það sem helst skilur þær að er að mjólkin úr Drífu hafði hærri efnahlutföll á tímabilinu. Fimmta kýrin að þessu sinni var Tígulbrá 518 (f. Tígull 428, sonur Hosa 08062 og dóttursonur Umba 98036) í Skollagróf í Hrunamannahreppi, en hún mjólkaði á tímabilinu 13.004 kg.

Þó engin Þytsdætra sé að þessu sinni meðal fimm nythæstu kúnna við uppgjör maímánaðar, má þegar betur er að gáð, finna fimm dætur hans meðal 20 nythæstu kúnna.

Alls náðu 98 kýr á mjólkurframleiðslubúunum 503, sem afurðaskýrslum fyrir maí hafði verið skilað frá að morgni 14. júní að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 24 meira en 12.000 kg. og þar af mjólkuðu fimm áður taldar kýr 13.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,5 en árskýrnar voru að meðaltali 24,4. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.144,5 kg.

Meðalfallþungi 8.966 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 254,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 749,9 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk