Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum nóvember

Einir frá Espihóli í Eyjafjarðarsveit, undan Jörfa 13011 og kú nr. 1160.
Einir frá Espihóli í Eyjafjarðarsveit, undan Jörfa 13011 og kú nr. 1160.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í rétt liðnum nóvember, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna frá mjólkurframleiðendunum byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var um hádegi þ. 11. desember 2020.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 514 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 113 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.853,2 árskúa á fyrrnefndum 514 búum var 6.446 kg eða 6.751 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á þessum 514 búum var 48,4.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.582 kg. undanfarna 12 mánuði. Annað í röðinni var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem reiknuð meðalnyt árskúa reyndist 8.553 kg. Þriðja var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúnna var 8.514 kg. Í fjórða sæti var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð þar sem meðalnyt árskúa var 8.436 kg. Fimmta var bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem meðalnytin reiknaðist 8.300 kg. eftir árskúna.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Smuga 465 (f. Síríus 02032) í Ytri-Hofdölum í Skagafirði sem mjólkaði 15.185 kg. Önnur var Merlin 2268 (f. naut nr. 2018, sonur Húna 07041 og dóttursonur Taums 01024) í Lambhaga á Rangárvöllum en nyt hennar var 14.734 kg. á tímabilinu. Þriðja nythæst var Píla 1288 (f. Afli 11010) í Garði í Eyjafjarðarsveit sem skilaði 13.842 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða í röð efstu kúa var Rauðsól 616 (f. Laufás 08003) á Skíðbakka í Austur-Landeyjum en nyt hennar var 13.664 kg. á tímabilinu. Fimmta á þessum lista að þessu sinni var Láka 1286 (f. Vatnar 11022) í Skáldabúðum í hinum forna Gnúpverjahreppi sem mjólkaði 13.420 kg.  

Alls náðu 128 kýr á búunum 514, sem afurðaskýrslum fyrir nóvember hafði verið skilað frá um hádegi 11. desember að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 32 nyt frá 12.000 kg. og þar yfir, á tímabilinu. Af þeim hópi mjólkuðu átta kýr yfir 13.000 kg. og tvær af þeim meira en 14.000. Sú nythærri þeirra tveggja skilaði yfir 15.000 kg. á umræddu tímabili eins og fram hefur komið.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 25,7 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 21,2. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.176,4 kg.

Meðalfallþungi 9.024 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 249,0 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 745,0 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk