Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum nóvember

Banki frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi, sonur Kátínu 866 og Róðurs 16019.
Banki frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi, sonur Kátínu 866 og Róðurs 16019.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn nóvember, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggjast á skilum eins og þau voru laust eftir hádegið þann 13. desember.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 477 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 126 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.424,2 árskúa á búunum 477 var 6.327 kg. eða 6.416 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum 477 búum var 51,2.

Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var á búi Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi þar sem árskýrin mjólkaði að meðaltali 8.923 kg. Næstmesta meðalnytin var á búi Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem meðalárskýrin skilaði 8.619 kg. mjólkur á tímabilinu. Þriðja í röðinni nú var bú Dalbæjar 1 ehf. í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi en þar reiknaðist meðalnyt árskúnna 8.614 kg. á umræddu tímabili. Fjórða að þessu sinni var bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóa þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.556 kg. á tímabilinu. Í fimmta sæti var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúa var 8.525 kg.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Ófeig 882 (f. Skalli 11023) á Stóra-Ármóti í Flóa sem mjólkaði 14.148 kg. síðustu 12 mánuðina. Önnur í röðinni reyndist vera Gróska 757 (f. Platti 644, sonur Birtings 05043) á Þúfu í Landeyjum, sem mjólkaði 14.023 kg. á umræddu tímabili. Þriðja að þessu sinni var Fata 2106 (f. Sjarmi 12090) á Skáldabúðum 2 í hinum forna Gnúpverjahreppi sem skilaði 13.871 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða kýrin nú var Loppa 2490 (f. Þyrnir 15041) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 13.847 kg. á tímabilinu. Fimmta í röðinni var Valkyrja 912 (f. Blámi 803, sonur Kola 06003) í Efra-Ási í Hjaltadal sem mjólkaði á tímabilinu 13.420 kg.

Alls náðu 147 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir nóvember hafði verið skilað frá upp úr hádegi hinn 13. desember, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 50 nyt yfir 12.000 kg. Níu af þeim hópi mjólkuðu meira en 13.000 kg. á umræddu tímabili og tvær þeirra skiluðu nyt yfir 14.000 kg. eins og fyrr getur.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 27,4 en árskýrnar þar voru að jafnaði 26,2 við lok nóvember. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.728,0 kg.

Meðalfallþungi 10.026 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 251,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 747,1 dagur.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022