Niðurstöður skýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í febrúar 2019

Starri frá Skollagróf í Hrunamannahreppi, f. Gýmir 11007 og m. Embla 509
Starri frá Skollagróf í Hrunamannahreppi, f. Gýmir 11007 og m. Embla 509

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum febrúar hafa verið birtar á vef okkar. Ákveðnar breytingar voru gerðar seint á síðasta ári og kynnti Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgriparækt þær í grein á bls. 45 í Bændablaðinu þ. 1. nóvember sl. Rétt er að geta þess og hafa í huga við lesturinn að niðurstöðurnar í t.d. skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var um eða rétt eftir kl. 10 þ. 11. mars 2019.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 533 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 103 búa þar sem eingöngu var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 25.038,7 árskúa á búunum 533 var 6.234 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skýrslur höfðu borist frá var 47,0.

Meðalnyt árskúa var á síðustu 12 mánuðum, mest á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, sama búi og undanfarna mánuði, þar sem meðalkýrin skilaði nú 8.860 kg. að jafnaði. Annað í röðinni nú við uppgjör febrúarmánaðar var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, sem hefur verið þaulsætið hér um alllangt skeið. Meðalnyt árskúa á Brúsastöðum reiknaðist nú 8.356 kg. Í þriðja sæti voru að þessu sinni tvö bú með 8.216 kg meðalafurðir árskúa, bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi og bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Austur-Landeyjum. Fast á eftir fylgja Hvanneyrarbúið með meðalnytina 8.210 kg. eftir árskú og bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem árskýrin skilaði að jafnaði 8.208 kg. síðustu 12 mánuðina þannig að sjá má að þarna er mjótt á mununum.

Nythæst sl. 12 mánuði var kýrin Rökkva 715 (f. Fossdal 10040) á Kúskerpi í Blönduhlíð í Skagafirði, sem mjólkaði 13.057 kg. á tímabilinu. Önnur á listanum að þessu sinni var Krissa 756 (f. Baldi 06010) á Brúsastöðum í Vatnsdal en hún mjólkaði 13.036 kg. síðustu 12 mánuðina. Þriðja var Gola 694 (f. Þytur 09078) í Egilsstaðakoti í Flóa en nyt hennar reyndist 13.031 kg. á umræddu tímabili. Fjórða kýrin í röðinni var Randafluga 1035 (f. Boli 620 undan Kastala 07003) í Birtingaholti 4 Hrunamannahreppi með 13.005 kg.

Alls náðu 81 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir febrúar hafði verið skilað frá um tíuleytið þ. 11. mars, að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 15 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og fjórar þeirra síðastnefndu náðu að skila meira en 13.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 21,3 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 18,0 og meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 4.802,3 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 240,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 738,2 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk