Niðurstöður skýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nóvember 2018

Fölvi frá Birtingaholti 4, undan Gými 11007 og Brá 1272, Framadóttur
Fölvi frá Birtingaholti 4, undan Gými 11007 og Brá 1272, Framadóttur

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum nóvember hafa verið birtar á vef okkar. Ákveðnar breytingar voru gerðar nýlega og má vísa aftur til þess hér að Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgriparækt kynnti þær í grein á bls. 45 í Bændablaðinu þ. 1. nóvember sl. Rétt er að geta þess og hafa í huga við lesturinn að niðurstöðurnar í t.d. skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var um sl. miðnætti.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 534 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 105 búa þar sem eingöngu var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 25.224,1 árskýr á búunum 534 var 6.287 kg á síðustu 12 mánuðum og reiknaðist 27 kg. lægri en við lok október. Meðalfjöldi árskúa á búunum 534 var 47,2.

Meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, sama búi og fyrir mánuði síðan, þar sem meðalkýrin skilaði 8.827 kg. að jafnaði. Annað í röðinni nú er bú sem lengi hafði setið í efsta sætinu, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði nú að jafnaði 8.553 kg. Þriðja í röðinni nú, hið sama og að undanförnu, var bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en þar reiknaðist meðalnyt árskúnna 8.407 kg. Fjórða búið á listanum og í fimmta sæti við lok október var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, þar sem hver árskýr skilaði að jafnaði 8.378 kg. á tímabilinu. Fimmta sætið, en hið fjórða sæti seinast, skipaði Hvanneyrarbúið í Andakíl í Borgarfirði, þar sem hver árskýr mjólkaði að jafnaði 8.326 kg. sl. 12 mánuði.

Nythæst sl. 12 mánuði, eins og við seinasta uppgjör var kýr nr. 848 (f. Otur 11021) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð en hún mjólkaði 14.122 kg. með 3,76% fitu og 3,15% prótein. Önnur í röðinni en þriðja fyrir mánuði var Randafluga 1035 (f. Boli 0620, sonur Kastala 07003 og dóttursonur Sóla 98017) í Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi, en nyt hennar reyndist hafa verið 13.947 kg. síðustu 12 mánuðina. Þriðja kýrin á listanum að þessu sinni var Lóa 278 (f. Stíll 04041) en hún mjólkaði 13.657 kg. á tímabilinu sem um ræðir.

Alls náðu 96 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir nóvember hafði verið skilað frá áður en uppgjörið var reiknað, að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 29 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og náðu 6 þeirra að skila meira en 13.000 kg. og eins og fram hefur komið mjólkaði ein yfir 14.000 kg. síðustu 12 mánuðina.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 20,9 og meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 4.689,2 kg. Meðalfallþungi ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, frá þessum búum undanfarna 12 mánuði var 240,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 738,9 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk