Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í ágúst 2014

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar í ágúst sl. hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar niðurstöðurnar sem nú birtast urðu til á miðnætti aðfaranótt 11. september var búið að skila skýrslum fyrir síðastliðinn mánuð frá 88% þeirra búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 21.598,3 árskúa á búunum, sem skýrslurnar höfðu borist frá, síðastliðna 12 mánuði, var 5.745 kg en var 5.749 kg mánuðinn á undan. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum búum sem skýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti aðfaranótt 11. sept. var 40,4 og hafði hækkað um 0,3 frá uppgjöri mánaðarins á undan.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var á búi Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd, sama búi og sat efst fyrir mánuði, en þar var reiknuð meðalnyt nú 7.977 kg eftir árskú. Annað í röðinni nú var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal en það bú var einnig í öðru sæti seinast. Nytin þar var nú 7.922 kg eftir árskú. Þriðja búið að þessu sinni, en í fjórða sæti fyrir mánuði, var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd með reiknaða meðalnyt 7.693 kg á árskú. Í fjórða sæti nú í ágúst en í þriðja sæti seinast, var Hriflubú sf. í Hriflu í Þingeyjarsveit (áður í Ljósavatnshreppi), en þar var reiknuð meðalnyt nú 7.679 kg á árskú. Fimmta búið í röðinni að þessu sinni var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði. Meðalnytin þar var 7.668 kg eftir árskú. Á 41 búi reiknaðist meðalnytin nú 7.000 kg eða meiri en þau voru 35 fyrir mánuði síðan.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Agla 361 (f. Þrasi 98052) í Viðvík í Skagafirði en nyt hennar var 12.347 kg. Hún var í þriðja sæti á þessum lista við lok júlí sl. Önnur kýrin í röðinni að þessu sinni var Flóra 1294 (f. Náttfari 00035) í Flatey á Mýrum í Hornafirði með nyt upp á 12.110 kg á tímabilinu. Þriðja nythæsta kýrin var Gola 970 (f. Hjarði 06029) á Gili í Skagafirði og mjólkaði hún 12.095 kg sl. 12 mánuði. Fyrir mánuði síðan var hún efst á þessum lista. Fjórða kýrin nú var Bomba 157 (f. nr. 94 undan Fonti 98027) á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði en hún mjólkaði 12.047 kg á téðu tímabili. Hún var önnur nythæsta kýrin í ágúst. Fimmta kýrin nú var Gína 1049 (f. Sveppur 98035) í Þverholtum á Mýrum vestra en nyt hennar reyndist 11.469 kg á síðustu 12 mánuðum. Alls náðu 13 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti síðastliðna nótt, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum en fyrir mánuði voru þær 11.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk