Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í ágúst 2015

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni fyrir ágúst sl. hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til laust fyrir hádegi þ. 11. september, höfðu borist skýrslur frá 93% þeirra 578 búa sem skráð voru til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 23.385,9 árskúa á þessum 93% búanna, var 5.790 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalnyt árskúnna var 5.761 kg í júlí en þá voru skýrsluskil á þessum tíma um 91%. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skilað hafði verið frá var 43,6. Hafa ber enn í huga að ekki er hér um að ræða 100% skil skýrslna og skoða ber niðurstöðurnar þannig.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum á þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá við uppgjörið nú var, líkt og fyrir mánuði síðan, á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var meðalnyt árskúnna að þessu sinni 8.041 kg. Annað búið í röðinni núna, líkt og seinast var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem nytin reyndist nú 7.823 kg eftir hverja árskú. Þriðja í röðinni nú var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem hver árskýr skilaði 7.795 kg á tímabilinu. Í fjórða sæti að þessu sinni var Félagsbúið í Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum en meðalnyt árskúnna þar reiknaðist á síðustu 12 mánuðum 7.624 kg. Fimmta búið í röðinni var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd þar sem meðalafurðir árskúa voru 7.583 kg á umræddu tímabili.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Urður nr. 1229 (f. Laski 00010) á Hvanneyri í Borgarfirði en hún skilaði 12.759 kg á tímabilinu og var önnur á þessum lista fyrir mánuði. Næst í röðinni nú var var Aþena 624 (f. Aðall 02039) í Laxárholti 2 á Mýrum en hún skilaði 12.673 kg seinustu 12 mánuðina og var í þriðja sæti við seinasta uppgjör. Þriðja kýrin að þessu sinni var  Ausa nr. 306 (f. Þverteinn 97032) í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en hún mjólkaði 12.580 seinustu 12 mánuði og tróndi efst á listanum við lok júlí. Fjórða var kýr nr. 1237 (f. Ás 02048) í Bjólu 2 í Rangárþingi ytra (áður Djúpárhreppi) en nyt hennar var 12.441 kg á tímabilinu. Fimmta kýrin á listanum nú var Króna 131 (f. 198 undan Stíg 97010) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði en hún mjólkaði 12.418 kg á uppgjörstímabilinu og var fjórða á listanum fyrir mánuði. 

Alls náðu 32 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá undir hádegi 11. september að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Við seinasta uppgjör náðu 24 kýr þessu marki. Sex af þessum 32 kúm náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg en fyrir mánuði náði ein því marki.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk