Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í apríl

Bessi frá Brúnastöðum í Flóahreppi. Faðir: Dropi 10077, móðir Auðsæld 1034 á Brúnastöðum.
Bessi frá Brúnastöðum í Flóahreppi. Faðir: Dropi 10077, móðir Auðsæld 1034 á Brúnastöðum.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í apríl hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess og hafa í huga við lestur að niðurstöðurnar í t.d. skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var laust eftir hádegið þ. 13. maí 2019.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 538 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 104 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 25.473,7 árskúa á þessum 538 búum var 6.209 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skýrslur höfðu borist frá var 47,3.

Meðalnyt árskúa var á síðustu 12 mánuðum, mest á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, líkt og allmarga undanfarna mánuði, þar sem  hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.621 kg. Í öðru sæti að þessu sinni var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal. Meðalnyt árskúa þar reyndist nú 8.263 kg. síðustu 12 mánuði. Þriðja var bú Gunnbjarnar ehf. í í hinum forna Gnúpverjahreppi þar sem árskýrin skilaði 8.229 kg. að jafnaði á tímabilinu. Fjórða í röðinni var bú Búkosta ehf. í Reykjahlíð á Skeiðum en þar var meðalnyt árskúa 8.213 kg. Fimmta sætið skipaði bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem árskýrin skilaði að jafnaði 8.174 kg. síðustu 12 mánuðina.

Nythæst sl. 12 mánuði líkt og fyrir mánuði síðan var kýrin Gola 694 (f. Þytur 09078) í Egilsstaðakoti í Flóa en nyt hennar var 14.902 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni nú var Ransý 533 (f. Sandur 07014) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi en hún mjólkaði 13.469 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja kýrin var kýr nr. 910 í Flatey á Mýrum í Hornafirði sem mjólkaði 13.362 kg. á tímabilinu. Fjórða í röðinni var Hugrún 391 (f. Birtingur 05043) á Hnjúki í mynni Vatnsdals en nyt hennar var 13.259 kg. Fimmta á listanum að þessu sinni var kýr nr. 909 (f. Baldi 06010) á Espihóli í Eyjafirði, sem skilaði 12.828 kg. Alls náðu 69 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir apríl hafði verið skilað frá eftir hádegið þ. 13. maí, að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 12 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og þar af fjórar sem náðu að skila meira en 13.000 kg. Ein þeirra síðasttöldu rauf svo 14.000 kg. múrinn eins og fram hefur komið.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 21,1 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 18,0 og meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 4.797,4 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 240,1 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 736,9 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk