Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í febrúar 2015

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar fyrir febrúar eru nú orðnar aðgengilegar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður sem nú birtast urðu til á miðnætti aðfaranótt 12. mars var búið að skila skýrslum fyrir febrúarmánuð frá 90% þeirra 580 búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 21.922,2 árskúa á fyrrnefndum 90% búanna, var 5.751 kg sl. 12 mánuði. Sambærileg tala við lok janúar var 5.736 kg. Meðalfjöldi árskúa á þessum búum, 524 að tölu var 41,8. Rétt er að ítreka að þær niðurstöður sem nú birtast koma frá 90% skýrsluhaldara og hafa ber það í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var hjá Félagsbúinu í Ytri-Skógum undir Austur-Eyjafjöllum, 7.862 kg eftir árskú en það bú var í öðru sæti við seinasta uppgjör. Annað í röðinni núna en efst seinast var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal. Þar reyndist meðalnyt árskýrinnar 7.800 kg á tímabilinu sem nú er gert upp.  Þriðja var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd. Þar voru meðalafurðirnar eftir árskúna 7.744 kg. Fjórða sætið vermdi bú Kristjáns Hans Sigurðssonar í Lyngbrekku á Fellsströnd með reiknaða meðalnyt 7.698 kg eftir árskú. Þriðja og fjórða sætið skipuðu nú sömu bú og við síðasta uppgjör en sætaskipti höfðu orðið. Í fimmta sæti var sama búið og síðast, Félagsbúið á Espihóli í Eyjafirði. Þar var meðalnytin nú 7.626 kg. Á 30 búum var reiknuð meðalnyt yfir 7.000 kg eftir árskú.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var hin sama og fyrir mánuði, Ausa 306 (f. Þverteinn 97032) í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en hún mjólkaði 12.753 kg á tímabilinu. Önnur í röðinni en þriðja fyrir mánuði, var kýr nr. 724 (f. Karri 06007) á Espihóli í Eyjafirði. Hún skilaði 11.881 kg mjólkur á síðustu 12 mánuðum. Þriðja kýrin á listanum var Embla nr. 645 (f. Stefán nr. 528, sonur Laska 00010) í Keldudal í Hegranesi í Skagafirði en hún mjólkaði 11.875 kg á tímabilinu. Fjórða í röðinni nú var Króna 131 (f. 198 undan Stíg 97010) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði. Sú kýr skilaði 11.815 kg. Fimmta kýrin að þessu sinni var Blessun 379 (f. Þrasi 98052) í Árbæ á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu en nyt hennar var 11.766 kg.

Alls náðu 18 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti aðfaranótt 12. mars að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk