Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í maí 2015

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar fyrir maí eru nú orðnar aðgengilegar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður sem nú birtast urðu til um kl. 8:30 að morgni þess 11. júní var búið að skila skýrslum maímánaðar frá 89% þeirra 580 búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 22.144,9 árskúa á fyrrnefndum 89% búanna, var 5.746 kg sl. 12 mánuði. Sambærileg tala við lok apríl var 5.747 kg. Meðalfjöldi árskúa á þessum búum við uppgjörið nú var 42,8. Enn er rétt er að ítreka að þær niðurstöður sem nú birtast koma frá 89% skýrsluhaldara og hafa ber það í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var á sama búi og fyrir mánuði, Félagsbúinu í Ytri-Skógum undir Austur-Eyjafjöllum, þar skilaði árskýrin 7.759 kg á sl. 12 mánuðum. Annað í röðinni nú, sama og við síðasta uppgjör var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var meðalnyt árskúnna að þessu sinni 7.749 kg. Þriðja búið að þessu sinni var bú Kristjáns Hans Sigurðssonar í Lyngbrekku á Fellsströnd í Dölum þar sem meðalnytin reiknaðist 7.712 kg eftir árskú. Fjórða búið við uppgjör maímánaðar var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem hver árskýr skilaði 7.679 kg á tímabilinu. Fimmta búið á listanum að þessu sinni var bú Arnars Bjarna og Berglindar í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar var nyt eftir hverja árskú 7.660 kg mjólkur.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var  hin sama og fyrir mánuði, Ausa 306 (f. Þverteinn 97032) í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en hún mjólkaði 12.791 kg á tímabilinu. Önnur í röðinni að þessu sinni en fjórða seinast var Flaska nr. 883 (f. Bólstri 07011) í Garði í Eyjafjarðarsveit en hún skilaði 12.674 kg á síðustu 12 mánuðum. Þriðja nythæsta kýrin og sú sama og við síðasta uppgjör, var Króna 131 (f. 198 undan Stíg 97010) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði en nyt hennar á tímabilinu reyndist 12.652 kg. Fjórða kýrin nú er sú sem var í fimmta sæti við uppgjör aprílmánaðar, Lína 1147 (f. Dúllari 07024) á Stóra-Ármóti í Flóa, sem mjólkaði 11.983 kg á síðustu 12 mánuðum. Í fimmta sæti að þessu sinni var kýr nr. 740 (f. Kappi 01031) á Espihóli í Eyjafirði, sú sem var önnur í röðinni fyrir mánuði. Nyt hennar nú var 11.942 kg.

Alls náðu 12 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum hafði verið skilað frá að morgni 11. júní að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Þrjár þeirra náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk