Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í mars 2015

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar fyrir mars eru nú orðnar aðgengilegar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður sem nú birtast urðu til á miðnætti aðfaranótt 13. apríl var búið að skila skýrslum fyrir marsmánuð frá 94% þeirra 578 búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 23.020,4 árskúa á fyrrnefndum 94% búanna, var 5.749 kg sl. 12 mánuði. Sambærileg tala við lok febrúar var 5.751 kg. Meðalfjöldi árskúa á þessum búum, 541 að tölu var 42,6. Rétt er að ítreka að þær niðurstöður sem nú birtast koma frá 94% skýrsluhaldara og hafa ber það í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var hjá Félagsbúinu í Ytri-Skógum undir Austur-Eyjafjöllum, 7.754 kg en það bú var einnig efst á þessum lista fyrir mánuði síðan. Annað búið í röðinni að þessu sinni var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd. Þar voru meðalafurðirnar eftir árskúna 7.739 kg. Bú Péturs var annað á listanum fyrir mánuði síðan. Þriðja búið í röðinni núna en í öðru sæti fyrir mánuði, var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal. Þar reyndist meðalnyt árskýrinnar 7.689 kg sl. 12 mánuði. Fjórða búið eftir uppgjör marsmánaðar var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit en meðalárskýrin þar skilaði 7.628 kg sl. 12 mánuði. Í fimmta sæti að þessu sinni var Félagsbúið á Espihóli í Eyjafirði þar sem meðalafurðir árskúnna voru nú 7.601 kg. Á 31 búi var reiknuð meðalnyt yfir 7.000 kg eftir árskú.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var hin sama og fyrir mánuði, Ausa 306 (f. Þverteinn 97032) í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en hún mjólkaði 13.131 kg á tímabilinu. Önnur í röðinni en þriðja fyrir mánuði, var Embla nr. 645 (f. Stefán nr. 528, sonur Laska 00010) í Keldudal í Hegranesi í Skagafirði en hún mjólkaði 12.563 kg sl. 12 mánuði. Þriðja var kýr nr. 740 (f. Kappi 01031) á Espihóli í Eyjafirði en hún skilaði 12.080 kg. mjólkur á tímabilinu. Fjórða í röðinni nú var Króna 131 (f. 198 undan Stíg 97010) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði. Króna mjólkaði 12.001 kg. Fimmta kýrin að þessu sinni var Lína 1147 á Stóra-Ármóti í Flóa sem mjólkaði 11.739 kg síðustu 12 mánuði.

Alls náðu 14 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti aðfaranótt 12. mars að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Fjórar þeirra náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg og þar af komst ein yfir 13.000 kg markið.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk