Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í nóvember 2015

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nóvember sl. hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til um hádegisbilið þ. 11. desember, höfðu skýrslur borist frá 90% þeirra 576 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 23.196,0 árskúa á þessum 90% búanna, var 5.870 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg meðalnyt reiknaðist 5.842 kg í október síðastliðnum september en þá voru skýrsluskil 92% þegar niðurstöðurnar voru sóttar þ. 11. nóvember. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skilað hafði verið frá á fyrrnefndum tíma, var 44,6 nú en 44,3 við mánaðamótin á undan. Rétt er að muna að ekki er um að ræða 100% skil skýrslna og skoða ber niðurstöðurnar í samræmi við það.

Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var nytin nú 8.291 kg. Bú Péturs hefur verið í efsta sæti á þessum lista undanfarna mánuði. Annað í röðinni að þessu sinni en í fjórða sæti síðast, var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalárskýrin reiknaðist með 7.834 kg meðalnyt á tímabilinu. Hið þriðja í röðinni eins og við lok október var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem meðalnyt árskúnna var 7.802 kg á síðustu 12 mánuðum. Fjórða búið við lok nóvember var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem nytin reyndist 7.786 kg eftir hverja árskú. Fimmta á listanum og hið sama og fyrir mánuði var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 7.726 kg.

Kýr nr. 1237 (f. Ás 02048) í Bjólu 2 í Rangárþingi ytra (áður Djúpárhreppi) mjólkaði mest á síðustu 12 mánuðum, 13.294 kg. Hún var einnig efst á listanum tvo síðustu mánuði. Önnur í röðinni að þessu sinni var Urður 1229 (f. Laski 00010) á Hvanneyri í Borgarfirði. Nyt hennar reyndist 12.746 kg á tímabilinu. Hún var fjórða á listanum fyrir mánuði síðan. Þriðja kýrin nú var Milla 317 (f. Hersir 97033) í Hvammi á Barðaströnd en nyt hennar síðustu 12 mánuði var 12.619 kg. Fjórða kýrin en önnur fyrir mánuði var kýr nr. 783 (f. Ófeigur 02016) á Espihóli í Eyjafjarðarsveit en nyt hennar var 12.545 kg á síðustu 12 mánuðum. Í fimmta sæti að þessu sinni var Nögl 420 í Litla-Dunhaga I í Hörgárdal en hún skilaði 12.403 kg á tímabilinu.

 

Alls náðu 47 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir nóvember hafði verið skilað frá um hádegisbilið þ. 11. desember, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Við seinasta uppgjör náðu 48 kýr því marki. Tíu af þessum 47 kúm náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg en við lok október náðu fimmtán kýr þeirri nyt. Enn fremur mjólkaði ein þessara kúa yfir 13.000 kg á síðustu 12 mánuðum.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk