Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í október 2015

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í október sl. hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til laust fyrir kl. hálf tíu að morgni þ. 11. nóvember, höfðu skýrslur borist frá 92% þeirra 575 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 23.380,4 árskúa á þessum 92% búanna, var 5.842 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg meðalnyt reiknaðist 5.808 kg í síðastliðnum september en þá voru skýrsluskil 93% þegar niðurstöðurnar voru sóttar þ. 12. október. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skilað hafði verið frá á fyrrnefndum tíma, var 44,3 nú en 44,4 við mánaðamótin á undan. Rétt er að muna að ekki er um að ræða 100% skil skýrslna og skoða ber niðurstöðurnar í samræmi við það.

Röð fjögurra efstu búanna, þar sem meðalnyt reiknaðist hæst við seinustu mánaðamót, er óbreytt frá lokum september. Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar reyndist nytin að þessu sinni 8.243 kg. Annað búið í röðinni var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem nytin reyndist 7.911 kg eftir hverja árskú. Þriðja í röðinni nú var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem meðalnyt árskúnna var 7.754 kg á síðustu 12 mánuðum. Í fjórða sæti við lok október var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalárskýrin reiknaðist með 7.702 kg meðalnyt. Fimmta búið á listanum að þessu sinni var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 7.666 kg.

Kýr nr. 1237 (f. Ás 02048) í Bjólu 2 í Rangárþingi ytra (áður Djúpárhreppi) mjólkaði mest á síðustu 12 mánuðum, 14.074 kg. Hún var einnig efst á listanum fyrir mánuði. Önnur í röðinni að þessu sinni en fjórða fyrir mánuði var kýr nr. 783 (f. Ófeigur 02016) á Espihóli í Eyjafjarðarsveit en nyt hennar var 13.408 kg á síðustu 12 mánuðum. Þriðja var Treyja 387 (f. Þverteinn 97032) í Hrepphólum í Hrunamannahreppi en hún skilaði 13.019 kg á tímabilinu. Fjórða kýrin nú en í þriðja sæti fyrir mánuði, var Urður 1229 (f. Laski 00010) á Hvanneyri í Borgarfirði. Nyt hennar reyndist 12.903 kg. Fimmta var kýr nr. 698 (f. Laski 00010) á Espihóli í Eyjafjarðarsveit, en hún mjólkaði 12.653 kg á umræddu tímabili, þannig að nú eru tvær af fimm nythæstu kúnum, úr sömu hjörðinni.

Alls náðu 48 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir október hafði verið skilað frá um hálf tíu að morgni 11. nóvember, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Við seinasta uppgjör náðu 41 kýr þessu marki. Fimmtán af nefndum 48 kúm náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg en við lok september náðu tólf kýr því marki. Enn fremur mjólkuðu þrjár þessara kúa yfir 13.000 kg á síðustu 12 mánuðum og ein þeirra þriggja skilaði yfir 14.000 kg mjólkur á tímabilinu.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk