Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í október 2016

Tappi frá Torfum - á Nautastöðinni á Hesti
Tappi frá Torfum - á Nautastöðinni á Hesti

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nýliðnum október hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til skömmu fyrir hádegið þ. 11. nóvember, höfðu skýrslur borist frá 89% af þeim búum sem skráð voru til þátttöku en þau voru 566. Reiknuð meðalnyt 22.721,1 árskýr á þessum 89% búanna, var 6.202 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg tala frá því fyrir mánuði er 6.195 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,9 á tímabilinu, jafnmargar og fyrir mánuði. Hafa þarf enn í huga að hér er um að ræða 89% skil skýrslna og skoða þarf niðurstöðurnar í því ljósi.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr mjólkaði þar 8.814 kg. á tímabilinu. Búið í öðru sæti listans var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, búið sem var í þriðja sæti við uppgjör októbermánaðar. Meðalkýrin á Gautsstöðum skilaði 8.182 kg. á tímabilinu. Þriðja í röðinni að þessu sinni var bú Þrastar Þorsteinssonar á Moldhaugum þar sem meðalnyt árskúa var nú 8.138 kg. Fjórða búið á listanum við uppgjör október, en í fimmta sæti seinast, var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit en meðalárskýrin þar mjólkaði 8.128 kg. Fimmta í röðinni nú var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem hver árskýr skilaði að jafnaði 8.115 kg. á síðustu 12 mánuðum.  

Nythæsta kýrin við uppgjör októbermánaðar var Aska 1722 (f. Vegbúi 08058) í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu en hún mjólkaði 13.789 kg. á síðustu 12 mánuðum. Aska var í fjórða sæti á þessum lista við lok september. Önnur í röðinni að þessu sinni, eins og fyrir mánuði síðan, var Urður 1229 (f. Laski 00010) á Hvanneyri í Andakíl en nyt hennar var 13.347 kg. Þriðja kýrin á listanum var Króna 131 (f. 198 undan Stíg 97010) í Ásgarði í Reykholtsdal í Borgarfirði en hún mjólkaði 13.118 kg. sl. 12 mánuði. Fjórða kýrin núna og í fyrsta sæti fyrir mánuði, var Agla 361 (f. Þrasi 98052) í Viðvík í Viðvíkursveit í Skagafirði, en hún mjólkaði 13.104 kg. Fimmta í röðinni nú var Skvís 1161 (f. 965 undan Víðkunni 06034) en nyt hennar á tímabilinu var 12.959 kg.

Alls náðu 66 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir október hafði verið skilað frá skömmuu fyrir hádegi þ. 11. nóvember, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. 17 af þeim náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg. og fjórar þeirra komust yfir 13.000 kg. markið.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk