Sýningargjöld 2021

Verð fyrir fullnaðardóm árið 2021 er 29.900 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 22.900 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000  en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 15.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 12.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. 

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí fyrir vorsýningar og 14. ágúst fyrir miðsumarssýningar. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.