Upplýsingar um skráningar

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. 

Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í  síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar.

Verði skráningar færri en búist er við verður dögum fækkað eða sýningar sameinaðar eftir þörfum. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Hér að neðan má sjá  hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur á sýningarnar.

Dags.

Staður

Loka skráningar- og greiðsludagur

17.08-21.08

Gaddstaðaflatir við Hellu

föstudagur 7. ágúst

17.08-21.08

Sörlastaðir í Hafnarfirði

föstudagur 7. ágúst

17.08-21.08

Hólar í Hjaltadal

föstudagur 7. ágúst

 

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.