Orkuþarfir til viðhalds
Orkuþarfir til viðhalds er sú orka sem þarf til þess að halda hesti/hrossi í orkujafnvægi (án brúkunar). Orkuþörf fer eftir stærð og þunga. Samkvæmt evrópska fóðurmatskerfinu eru orkuþarfir minni hestakynja reiknaðar á eftirfarandi hátt: FEh til viðhalds = 0,037 x Þ0,75 þar sem Þ stendur fyrir þunga hestsins í kg.
Próteinþarfir til viðhalds
Daglegar próteinþarfir hests til viðhalds eru nálægt 70 g meltanlegs hrápróteins fyrir hver 100 kg í þunga. Reikna má daglega próteinþörf fullorðinna hesta til viðhalds á eftirfarandi hátt: 3 g meltanl. hráprótein x Þ0,75 þar sem Þ er þungi hestsins í kg.
Orku- og próteinþarfir fullorðinna hesta til viðhalds
Orku- og próteinþarfir fullorðinna hesta til viðhalds |
Þungi, kg |
FE |
FEh |
g mph/dag* |
250 |
2,6 |
2,3 |
189 |
300 |
2,9 |
2,7 |
216 |
350 |
3,3 |
3,0 |
242 |
400 |
3,6 |
3,3 |
268 |
*mph=meltanlegt hráprótein |
Meðalþungi íslenskra hrossa er um 370 kg og daglegar viðhaldsþarfir því nálægt 3,1 FEh og 250 g próteins. Alltaf skal taka tillit til holdafars og ásigkomulags við mat á fóðurþörfum og einungis nota staðalgildi til viðmiðunar.
Orkuþarfir vegna brúkunar Til viðmiðunar þarf að bæta eftirfarandi við viðhaldsfóður brúkunarhrossa |
Við létta brúkun |
25% eða 0,5 FEh/klst. í hægri reið |
Við talsverða brúkun |
50% eða 1,0 FEh/klst. á milliferð (brokk eða tölt) |
Við mikla brúkun |
75% eða 1,5 FEh/klst. í hraðri reið eða strangri þjálfun |
Við mjög erfiða brúkun |
100% í strangri þjálfun eða keppni |
Orku- og próteinþarfir unghrossa til viðhalds og vaxtar |
Aldur |
Þungi, kg |
FEh/dag |
g próteins/FEh |
Tryppi á 1. vetri |
130-220 |
3,0-3,5 |
140 |
Tryppi á 2. vetri |
210-320 |
3,1-4,0 |
130 |
Tryppi á 3. vetri |
250-350 |
3,0-4,0 |
120 |
Tryppi á 4. vetri |
280-380 |
3,0-4,2 |
100* |
*Tryppi í tamningu |
Steinefnaþarfir hrossa
Áætlaðar steinefna- og vítamínþarfir hrossa |
Kalsíum (Ca) |
6-9 g/FEh |
Fosfór (P) |
5-7 g/FEh |
Natríum (Na) |
1,5-2 g/FEh |
Magnesíum (Mg) |
1,5-2 g/FEh |
Selen (Se) |
0,05-0,1 mg/FEh |
A-vítamín |
5.000 a.e./FEh |
D-vítamín |
500 a.e./FEh |
E-vítamín |
50 mg/FEh |
Hærri gildin í töflunni eiga einkum við hross í vexti, mikilli brúkun (stífri þjálfun), á meðgöngu og mjólkurskeiði. |
Helstu heimildir:
Ingimar Sveinsson 2003: Fóðurþörf og fóðrun hrossa. Handbók bænda 53: 131-132.