Fræin í krukkunni

Á sveitasælu í Skagafirði um síðustu helgi var RML með getraun fyrir sýningargesti þar sem þeir áttu að segja til um hve mörg fræ af vetrarnepju væru í lítilli glerkrukku. Verðlaun fyrir réttasta svarið að fá að velja nafn á naut hjá Nautastöðinni á Hesti. Það var Ólafur Ísar Jóhannesson, ungur maður frá Brúnastöðum í Fljótum sem var með besta svarið, hann giskaði á 50 þúsund en í krukkunni voru 53 þúsund fræ. Við óskum honum til hamingju og hlökkum til að heyra af nafninu sem hann velur. 

el/okg