Guðfinna Lára Hávarðardóttir komin til starfa

Guðfinna Lára Hávarðardóttir hefur hafið störf hjá RML. Hún mun einkum starfa við fóðrunarráðgjöf og hafa starfsaðstöðu á Selfossi. Guðfinna kemur í stað Hrafnhildar Baldursdóttur sem komin er í fæðingarorlof. Best er að hafa samband við Guðfinnu til að byrja með í gegnum netfangið hennar glh@rml.is.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins býður Guðfinnu Láru velkomna til starfa.

Á starfsstöð RML á Selfossi starfa einnig:

Guðmundur Jóhannesson - ábyrgðarmaður í nautgriparækt
Halla Eygló Sveinsdóttir - ráðunautur í hrossarækt
Hrafnhildur Baldursdóttir - í fæðingarorlofi
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir - ráðunautur í fóðrun
Kristján Bjarndal Jónsson - ráðunautur í jarðrækt
Ólafur Þór Þórarinsson - gefur ráð og aðstoðar við notkun dkBúbótar
Runólfur Sigursveinsson - fagstjóri rekstrar- og nýsköpunarsviðs
Sveinn Sigurmundsson - ráðunautur í nautgriparækt (í hlutastarfi)

/gj