Undanfarin ár hafa rannsóknir staðið yfir á áhrifum beitarfriðunar á kolefnisupptöku og magn kolefnis í jarðvegi. Rannsóknaverkefnið ExGraze, sem hlaut styrk úr Rannsóknarsjóði 2021 (Rannís 217920-051) og RML tók þátt í upphafi, er nú á lokametrunum og verða niðurstöður þess kynntar á eftirtöldum stöðum:
- Í Félagsheimilinu Árnesi, Gnúpverjahreppi mánudaginn 25. ágúst kl: 20:00
- Í Félagsheimilinu Brún, Bæjarsveit þriðjudaginn 26. ágúst kl: 20:00
- Í Kakalaskála, Akrahreppi Skagafirði miðvikudaginn 27. ágúst kl: 20:00
- Í Forystusetrinu Svalbarði, Þistilfirði fimmtudaginn 28. ágúst kl: 20:00
- Í samkomuhúsinu Heiðarbæ, Reykjahverfi föstudaginn 29. ágúst kl: 20:00
Í ExGraze verkefninu voru áhrif beitarfriðunar á kolefnisupptöku gróðurs og kolefnismagn í jarðvegi mæld. Sýni voru tekin beggja vegna girðinga sem settar höfðu verið upp í beitilandi á 35 stöðum á landinu. Girðingarnar voru 20 til 80 ára gamlar svo unnt var að mæla langtíma áhrif beitarfriðunar. Á öllum stöðum var unnið með náttúrulegan óáborinn úthaga, graslendi og mólendi á láglendi (neðan 200 m.y.s.). Mikill munur fannst á öllum mældum þáttum rannsóknarinnar þar sem beitt graslendi tók langmest upp af kolefni og hafði mestan kolefnisforða í jarðvegi.
Á fundunum verður farið yfir framkvæmd rannsóknarinnar og niðurstöður hennar. Að lokinni framsögu er gert ráð fyrir umræðum yfir kaffibolla.