Laus störf hjá RML

Lausar eru til umsóknar tvær 70% stöður hjá RML. Um er að ræða afleysingar í eitt ár, frá 1. apríl 2014. Önnur staðan er á Suðurlandi með starfsstöð á Selfossi en hin á Norðurlandi með starfsstöð á Akureyri.

Báðar stöðurnar eru vegna vinnu við fóðurráðgjöf. Skilyrði er að umsækjendur hafi að lágmarki búvísindamenntun eða aðra sambærilega menntun.

Áhugasömum er bent á að sækja um hér í gegnum heimasíðu RML, ekki seinna en 1. mars næstkomandi.

RML áskilur sér rétt til að velja hvern sem er úr hópi umsækjenda um afleysingastörfin eða hafna öllum umsóknum sem berast.

Umsókn um starf 

boo/okg