Leikur á facebooksíðu RML - vegleg verðlaun

Á facebooksíðu okkar er nú hægt að taka þátt í leik þar sem hægt er að vinna til veglegra verðlauna.

Leikurinn er þannig að þátttakendur senda mynd sem tengist heyskap á facebooksíðu okkar. Engin skilyrði eru fyrir því hvað skuli vera á myndinni en hún þarf þó að tengjast heyskap með einhverjum hætti. Ekki er verra að myndin sé falleg, sniðug, skemmtileg eða listræn en aðalmálið er að hugmyndaflug ljósmyndarans fái að njóta sín. Hver þátttakandi má eingöngu senda inn eina mynd.

Eigandi þeirrar myndar sem hlýtur flest „like“ fyrir lok fimmtudagsins 17. júlí mun fá í verðlaun ráðgjafarpakka RML að eigin vali fyrir andvirði allt að 50.000 krónum. 

Við hvetjum ykkur til að fylgja okkur á facebook og vonum að sem flestir taki þátt í þessu með okkur. Hlökkum til að sjá myndir! 

Sjá nánar

Facebook síða RML

Ráðgjafarpakkar RML 

/okg