Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum janúar

Skugga-Sveinn frá Stóra-Ármóti í Flóa, hreinræktaður Aberdeen Angus
Skugga-Sveinn frá Stóra-Ármóti í Flóa, hreinræktaður Aberdeen Angus

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í janúar, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna frá mjólkurframleiðendunum byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga undir hádegi þ. 11. febrúar 2021 en frá nautakjötsframleiðendum nokkrum klukkustundum fyrr.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 514 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 110 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.837,5 árskúa á fyrrnefndum 514 búum var 6.378 kg eða 6.517 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á þessum 514 búum var 48,3.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem nytin reiknaðist 8.603 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúnna var 8.320 kg. Þriðja var bú Hákonar og Þorbjargar á Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit þar sem meðalárskýrin skilaði 8.313 kg. síðustu 12 mánuðina. Fjórða búið skv. niðurstöðunum var bú Rúts og Guðbjargar á Skíðbakka í Landeyjum þar sem meðalnyt árskúa var 8.291 kg. Fimmta í röðinni var bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem árskýrin skilaði að meðaltali 8.271 kg. á tímabilinu sem um ræðir.

 Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Ösp 1280 (f. Sóli 1016, sonur Áss 02048; mf. Gustur 09003) í Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi sem mjólkaði 14.784 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni var Smuga 465 (f. Síríus 02032) í Ytri-Hofdölum í Skagafirði sem mjólkaði 13.728 kg. Þriðja nythæsta kýrin reyndist vera Fanney 625 (f. Lögur 07047) á Fossi í Hrunamannahreppi en hún mjólkaði 13.471 kg. Fjórða var Auðhumla 370 (f. Þytur 09078) en nyt hennar síðustu 12 mánuði var 13.447 kg. Fimmta á listanum að þessu sinni var síðan Komma 2037 (f. Laukur 1754, sonur Aðals 02039; mf. Ás 02048) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.330 kg. síðustu 12 mánuði.

Alls náðu 131 kýr á búunum 514, sem afurðaskýrslum fyrir janúar hafði verið skilað frá nokkru fyrir hádegi 11. febrúar að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 39 nyt uppá 12.000 kg. og þar yfir. Af þeim hópi mjólkuðu sjö kýr yfir 13.000 kg. og ein þeirra meira en 14.000 eins og fram hefur komið.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 25,6 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 22,1. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.534,1 kg.

Meðalfallþungi 8.905 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 251,1 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 746,1 dagur.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk