Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum september

Flosi frá Hólmum í Austur-Landeyjum, sonur Knattar 16006 og Bjarkareyjar 844.
Flosi frá Hólmum í Austur-Landeyjum, sonur Knattar 16006 og Bjarkareyjar 844.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir september, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggjast á skilum eins og þau voru laust eftir hádegið þann 11. október.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 470 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 123 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.094,8 árskúa á búunum 470 var 6.294 kg. eða 6.238 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum 470 búum var 51,3.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuðina var á búi Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi þar sem árskýrin skilaði að meðaltali 8.710 kg. mjólkur. Annað í röðinni var bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóa þar sem hver árskýr mjólkaði að jafnaði 8.548 kg. á tímabilinu. Í þriðja sæti var bú Dalbæjar 1 ehf. í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi en þar var meðalnyt árskúnna 8.535 kg. á umræddu 12 mánaða tímabili. Fjórða í röðinni reyndist vera bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem meðalárskýrin mjólkaði að meðaltali 8.520 kg. á tímabilinu sem um ræðir. Fimmta að þessu sinni var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, þar sem nyt hverrar árskýr reiknaðist 8.468 kg. að meðaltali.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Hrafndís 1743 (f. Már 1478, sonur Sands 07014) í Garði í Eyjafjarðarsveit en hún mjólkaði 14.121 kg. á tímabilinu. Í öðru sæti var Loppa 2490 (f. Þyrnir 15041) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 13.640 kg. síðustu 12 mánuði. Þriðja var Vænting 1271 (f. Hrókur 708, sonur Þryms 02042) í Skáldabúðum 2 í hinum forna eystri hreppi, Gnúpverjahreppi, en hún skilaði 13.495 kg. mjólkur á síðustu 12 mánuðum. Fjórða í röðinni var Hólmfríður 726 (f. Blómi 08017) í Hólmum í Austur-Landeyjum sem mjólkaði 13.430 kg. síðustu 12 mánuði. Fimmta að þessu sinni var kýr nr. 1450 (f. Gýmir 11007) í Stóru-Mörk 3 undir Eyjafjöllum en hún skilaði nyt upp á 12.992 kg. á uppgjörstímabilinu.

Alls náðu 153 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir september hafði verið skilað frá upp úr hádegi hinn 11. október, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 33 nyt yfir 12.000 kg. Fjórar þeirra mjólkuðu meira en 13.000 kg. á umræddu tímabili eins og fram hefur komið. Ein þeirra fjögurra skilaði síðan nyt yfir 14.000 kg. sem fyrr getur.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 28,8 en árskýrnar þar voru að jafnaði 25,6 við lok september sl. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.597,8 kg.

Meðalfallþungi 9.882 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 250,3 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 746,3 dagar.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022