Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóli Íslands í samstarf

Þriðjudaginn 4. febrúar var undirritað samkomulag um samstarf Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóla Íslands um þætti sem snerta endurmenntun, kennslu og ýmiss brýn verkefni á sviði ráðgjafar og nýsköpunar í landbúnaði. Mikilvægur þáttur samkomulagsins er að stofnað verður til sameiginlegra faghópa til að greina þarfir, markmið og leiðir fyrir faglegt starf á sameiginlegu verksviði.

Markmið faghópanna er að greina tækifæri í samstarfinu til að sinna brýnum verkefnum á sviði ráðgjafar, kennslu (starfsmenntastig, endurmenntun, háskólakennsla) og rannsókna með því markmiði að styrkja faglega stöðu greinanna. Jafnframt er viðfangsefni hópanna að finna tækifæri til þess að ýta úr vör rannsóknaverkefnum BS og MS nema og eftir atvikum doktorsnema og leiðir til fjármögnunar þessara verkefna. Með því móti gætu aðilar staðið sameignlega að því að styrkja rannsóknarám við LbhÍ og faglegan grundvöll ráðgjafaþjónustunnar.

Samkomulagið gerir ráð fyrir því að sérfræðingar RML komi að kennslu við LbhÍ eftir ákveðnu samkomulagi. Einkum er þar um að ræða kennslu í búfræði og búvísindum Mikilvægur þáttur samkomulagsins snýr að samstarfi um endurmenntun. Í samningnum er ennfremur formgerð aðkoma sérfræðinga LbhÍ að vinnslu kynbótamats í búfjárrækt sem þeir hafa annast fyrir Bændasamtökin mörg undanfarin ár og munu nú sinna fyrir RML.

 

Meðfylgjandi myndir eru teknar af Áskeli Þórissyni útgáfu- og kynningarstjóra hjá LbhÍ. Á myndinni hér að ofan má sjá Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóra RML og Ágúst Sigurðsson rektor LbhÍ skoða samninginn áður en hann var undirritaður. 

Á hinni myndinni má sjá f.v. Ágúst Sigurðsson rektor LbhÍ, Borgar Pál Bragason fagstjóra í nytjaplöntum RML, Guðríði Helgadóttur forstöðumann Starfs- og endurmenntunardeildar LbhÍ, Jóhannes Sveinbjörnsson deildarforseta Auðlindadeildar LbhÍ, Björn Þorsteinsson aðstoðarrektor kennslumála LbhÍ, Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóra RML og Helgu Halldórsdóttur verkefnisstjóra þróunar- og samskipta RML eftir undirritun samningsins.

klk/okg