RML auglýsir eftir ráðunaut í Austur-Skaftafellssýslu

Ábyrgðarsvið, menntun og hæfniskröfur:

  • Skal hafa lokið háskólaprófi í búvísindum eða annari sambærilegri menntun. Menntun eða reynsla af verkefnastjórnun eða skipulagningu verkefna æskileg.
  • Meginstarf viðkomandi er að vinna samkvæmt samkomulagi sem Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu hefur gert við sveitarfélagið Hornafjörð um viðhald og uppbyggingu landbúnaðar á svæðinu.
  • Viðkomandi starfsmanni RML er ætlað að vera tengiliður bænda á starfssvæðinu við RML ásamt því að koma beint að þeirri vinnu sem ekki krefst sérfræðiþekkingar ákveðinna starfsmanna RML. Hann leitist jafnframt við að veita eða miðla ráðgjöf vegna verkefna sem tilgreind eru i samkomulaginu og fylgja og verkstýra þeirri aðgerðaáætlun sem mótuð yrði á grundvelli þess. Við leitum að einstaklingum með brennandi áhuga á landbúnaði í hinum víðasta skilningi, sem hefur metnað og frumkvæði sem nýtist til að styðja við landbúnað á svæðinu. 
  • Áhersla er lögð á skipulögð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum auk þess sem viðkomandi þarf að halda utan um og stýra verkefnum innan fyrirtækisins samkvæmt vinnuferlum verkefnastjórnunar.
  • Kemur að öðrum verkefnum á einstökum fagsviðum innan RML sem starfsmaður hefur sérþekkingu til að gegna eftir því sem starfsaðstæður leyfa á hverjum tíma.
  • Skilyrði er að viðkomandi búi á svæðinu, sjá lýsingu á staðháttum hér fyrir neðan.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er framsækið ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda og leggur metnað sinn í að viðhalda faglegri og óháðri ráðgjöf til aðila innan landbúnaðarins. Fyrirtækið er með starfstöðvar víðs vegar um landið en nánari upplýsingar um starfsemina má finna hér á vefnum. 

Rauðaberg
Jörðin Rauðaberg er um 25 km frá Höfn. Þar er 150 fermetra starfsmannahús og 80 fermetra skrifstofuhúsnæði, bæði húsin eru steinsteypt. Íbúðarhúsið hefur nýlega verið endurnýjað að innan, málað, skipt um gólfefni og hurðir. Félagssvæði hestamannafélagsins Hornfirðings er í 20 km fjarlægð og þar eru hesthús og reiðhöll. Gott atvinnuástand er á svæðinu þannig að ekki ætti að vera vandamál fyrir maka að fá vinnu, jafnvel stutt frá Rauðabergi. Gert er ráð fyrir að mjög hófleg leiga verði á íbúðarhúsnæðinu. Um er að ræða mjög spennandi verkefni fyrir réttan aðila.

Upplýsingar um starfið eru veittar með tölvupósti í gegnum netföng Karvels L. Karvelssonar (klk@rml.is) eða Berglindar Óskar Óðinsdóttur (boo@rml.is ). Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2016. 

Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið í gegnum tengil hér að neðan. Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og starfsferil umsækjanda ásamt upplýsingum um umsagnaraðila.

Sækja um starf hjá RML

klk/okg