RML með á Sveitasælu í Skagafirði

Sveitasæla, landbúnaðarsýning og bændahátíð var haldin í Skagafirði um helgina. Á sýningunni sem var í Reiðhöllinni á Sauðárkróki í gær kynntu einstaklingar, félög og fyrirtæki starfsemi sína, vörur og þjónustu auk þess sem ýmis afþreying var í boði sem endaði á kvöldvöku.

Starfsmenn RML, Berglind Ósk Óðinsdóttir og Eiríkur Loftsson voru á staðnum og kynntu fyrir sýningargestum starfsemi fyrirtækisins.

Niðurstöður úr getraun og skoðanakönnun um fallegasta kýrnafnið verða birtar fljótlega hér á heimasíðunni.

el/okg