Staðfesting um breytingu á verðskrá

Samkvæmt staðfestingu frá frá Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti frá 25. mars 2019 er Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) heimilt að innheimta að hámarki kr. 8000,- auk vsk fyrir vinnu við sérfræðistörf sem falla undir búnaðarlög, sbr. 15. gr. rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins dags. 19. Febrúar 2016 og 3. mgr. 3. gr. búnaðarlaga.

Breytingin tekur gildi þann 1. maí 2019 og verðskrá breytist því í samræmi við heimildina.

Sjá nánar

Verðskrá RML

klk/okg