Starfsdagar RML 22.-24. febrúar

Nú standa yfir starfsdagar RML sem eru einskonar vinnufundur starfsmanna. Á starfsdögum koma allir starfsmenn fyrirtækisins saman og vinna að ýmsum verkefnum tengdum starfinu og þróun fyrirtækisins.
Það sem helst er á dagskrá að þessu sinni er stefnumótun RML og markaðsmál. Starfsdagarnir standa yfir 22.-.24. febrúar og því verður erfitt að ná beinu sambandi við starfsfólk á þessum tíma. Viðskiptavinum er bent á að senda tölvupóst sem verður svarað eins fljótt og auðið er eða í síðasta lagi strax eftir helgi.
Aðalnúmerið okkar 5165000 er þó opið þessa daga og öllum símtölum verður svarað eftir bestu getu.