Starfsmenn RML funda á Hólum í Hjaltadal

Starfsmenn RML dvöldu á Hólum í Hjaltadal dagana 10.-11. mars, þar sem fram fór starfsmannafundur. Á fundinn mættu flestir starfsmenn RML eða 43 að tölu. Á fundinum voru haldnir fyrirlestrar og unnið var í hópavinnu að ýmsum verkefnum fyrirtækisins. Einnig fengu starfsmenn kynningu á starfsemi Háskólans á Hólum, í hesthúsinu á Hólum, undir leiðsögn Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur rektors og Sveins Ragnarssonar deildarstjóra hestafræðideildar. Fundurinn var gagnlegur og eru starfsmenn vel undirbúnir að takast á við þau verkefni sem framundan eru. 

/okg