Fræðslufundur um fóðrun mjólkurkúa

Fræðslufundur RML um fóðrun mjólkurkúa verður haldinn á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd miðvikudaginn 19. mars kl. 13.00. Farið verður yfir helstu þætti er varða fóðrun til afurða og meiri verðefna í mjólk. Sérstök áhersla verður lögð á sumarbeit og nýtingu grænfóðurs. Á fundinum verður erindi frá norskum sérfræðingi í fóðrun, Jon Kristian Sommerseht, auk þess sem fóður- og jarðræktarráðgjafar RML halda fyrirlestur. Erindi Norðmannsins verður þýtt jafnhraðan á íslensku.

Kúabændur og aðrir áhugasamir velkomnir.

Fóðurráðgjafar RML/okg