Fréttabréf fóðurhóps RML komin á vefinn

Fóðurhópur RML sendir mánaðarlega frá sér fréttabréf til bænda sem eru í ráðgjafarpökkunum Stabba og Stæðu, auk þeirra sem eru áskrifendur að Norfor með eigin aðgang. Nú eru þessir fréttapistlar komnir hér inn á heimasíðu RML fyrir alla sem áhuga hafa á fóðrun nautgripa og fóðuröflun.

Pistlar vetrarins hafa meðal annars fjallað um frjósemi kvígna og fullorðinna kúa, gerjunarafurðir í gróffóðri, hvernig megi fóðra kýrnar til að auka fitu í mjólk, um lýsingu í fjósum og margt fleira. 

Sjá nánar

Útgefin fréttabréf frá fóðurhópi

jþr/okg