Fyrstu söluaðilar eru búnir að gefa út sáðvöruframboð sitt fyrir vorið og því er kominn tími til að byrja að huga að sáðvörukaupum. Ráðunautar RML taka saman framboð fræsala af sáðvöru líkt og undanfarin ár. Ýmis ný og gömul yrki eru í boði en við áréttum mikilvægi þess að kynna sér vel hugsanlegan mun á yrkjum einstakra tegunda enda getur verið mikill munur á frammistöðu þeirra þó þau tilheyri sömu tegundinni.
Í samantekt RML eru umsagnir um yrki teknar upp úr síðasta útgefna riti Nytjaplöntur á Íslandi sem gefið er út af LbhÍ. Í ritinu má einnig finna upplýsingar um helstu tegundir í ræktun hérlendis og sérkenni þeirra, ef það eru engar upplýsingar um yrkin í ritinu er ekki þar með sagt að það sé engin reynsla komin af þeim yrkjum hérlendis,
Margar spennandi grasfræblöndur eru í boði. Markvisst val á tegundum og yrkjum til ræktunar er mikilvægur þáttur í bústjórninni. Taka þarf tillit til staðbundinna aðstæðna og hver markmiðin eru með ræktuninni svo að ávinningurinn verði sem bestur í búrekstrinum. Við minnum fólk á að innihald grasfræblanda getur hafa breyst á milli ára þótt að nafnið sé það sama. Yrki og hlutföll sem hafa breyst frá síðasta ári eru rauðmerkt í sáðvörulistanum en ekki er horft til breytinga frá eldri árum.
Ráðunautar RML eru tilbúnir að aðstoða við val á tegundum og yrkjum og hægt er að óska eftir ráðgjöf í síma 516 5000.
Sjá nánar:
Verð og framboð á sáðvöru 2026
Verð og framboð á grasfræblöndum 2026
/hh