Viltu framleiða bestu mjólk í heimi?

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins býður bændum pakkalausnir í fóðurráðgjöf mjólkurkúa á komandi vetri. Pakkarnir eru tveir með mismiklu umfangi. Stabbi er minni í sniðum en í honum felast fóðuráætlanagerð, heysýnatúlkun, vöktun á efnainnihaldi mjólkur og nyt sem og ein eftirfylgniheimsókn. Stæða er heldur stærri í sniðum og inniheldur alla þætti Stabba auk gróffóðursýnatöku, mats á holdafari og aðstöðu til fóðrunar, leiðbeininga um fóðurverkun og beitaráætlanagerð ef tími vinnst til. Innifalin í Stabba er vinna ráðunauts í 8 tíma en í Stæðu er reiknað með að ráðunautur vinni 18 tíma fyrir bóndann.

Pöntun á ráðgjafarpökkum fer fram á heimasíðu RML undir lið sem heitir Ráðgjafarpakkar.

Nánari upplýsingar veita ráðgjafar í fóðurhópi;
Berglind Ósk Óðinsdóttir (sími 516-5009),
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir (sími 516-5029),
Eiríkur Loftsson (sími 516-5012) og
Guðfinna Lára Hávarðardóttir (sími 516-5067). 

Sjá nánar:

Ráðgjafarpakkar í fóðrun

jþr/gj