Þjónustukönnun RML á Bændatorgi

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins leggur mikinn metnað í að veita bændum um allt land góða þjónustu og við leitum stöðugt leiða til að bæta ráðgjöf okkar enn frekar. Því hvetjum við bændur til að taka þátt í þjónustukönnun okkar sem er aðgengileg inni á Bændatorginu undir fréttum. Könnunin er stutt og ætti ekki að taka nema 3 til 4 mínútur að svara henni og niðurstöður er ekki hægt að rekja til einstakra svarenda.

Það er okkur mjög mikils virði að fá sem flest svör til þess að við getum haldið áfram að efla og bæta ráðgjöf og þjónustu við bændur.
Með fyrirfram þökk,


starfsfólk RML