Fagþing nautgriparæktarinnar 22. mars n.k.

Sjarmi 12090
Sjarmi 12090

Fagþing nautgriparæktarinnar verður haldið í tengslum við aðalfund Landssambands kúabænda líkt og undanfarin ár. Að þessu sinni verður fagþingið á Hótel Sögu í Reykjavík föstudaginn 22. mars og hefst kl. 12:30. Aðalfundur LK hefst á sama stað kl. 10:00 með skýrslu stjórnar og ávörpum gesta og umræðum en að loknum léttum hádegisverði  því loknu tekur fagþingið við. Á dagskrá eru fjölmörg erindi þar sem m.a. verður fjallað um kynbætur, skýrsluhald og nautakjötsframleiðslu. Aðalfundur LK og fagþingið eru að sjálfsögðu opin öllum kúabændum og öðru áhugafólki um nautgriparækt.

Dagskrá fagþingsins er eftirfarandi:

Kl. 12.30 Setning á Fagþingi nautgriparæktarinnar – Guðný Helga Björnsdóttir, formaður fagráðs í nautgriparækt

Kl. 12.35 Verðlaun fyrir bestu nautin í árg. 2011 og 2012– Guðmundur Jóhannesson, RML

Kl. 12.50 Skýrsluhald í nautakjötsframleiðslu – Guðmundur Jóhannesson, RML

Kl. 13.10 Nýtt erfðaefni til kjötframleiðslu– Sigurður Loftsson/Sveinn Sigurmundsson, NautÍs

Kl. 13.25 Sæðingaaðstaða fyrir holdakýr– Jóna Þórunn Ragnarsdóttir og Sigtryggur Veigar Herbertsson, RML

Kl. 13.50 Mælidagalíkan fyrir afurðaúthald og efnahlutföll– Jón Hjalti Eiríksson, RML

Kl. 14.05 Áhrif mælidagalíkans á nautaval– Guðmundur Jóhannesson, RML

Kl. 14.20 Skyldleikarækt og áhrif hennar á afurðir í íslenska kúastofninum– Bjarni Sævarsson

Kl. 14.35 Erfðamengisúrval, skyldleiki íslenska kúastofnsins við önnur kyn og niðurstöður ætternisgreininga – Egill Gautason, Háskólanum í Árósum og Guðmundur Jóhannesson, RML

Kl. 14.55 Kaffihlé

Kl. 15.15 Hagrænt vægi eiginleika– Jón Hjalti Eiríksson, RML

Kl. 15.40 Skýrsluhald í mjólkurframleiðslu og norræn samvinna við gagnaöflun– Guðmundur Jóhannesson, RML

Kl. 16.00 Fyrirspurnir og ráðstefnuslit

 /gj