Greiðslur fyrir mjólk umfram geiðslumark frá 1. jan. 2017

Stjórn Auðhumlu svf. ákvað á fundi sínum 27. október 2016 að fyrirkomulag á greiðslum fyrir umframmjólk 2017 verði óbreytt frá því sem nú er, en sérstakt innvigtunargjald verði hækkað í 35 kr. á lítra frá 1. janúar 2017 sem svo endurskoðist mánaðarlega. Þetta innvigtunargjald nemur nú 20 kr. á lítra þannig að um 75% hækkun er að ræða á gjaldinu.

Greiðslur til bænda fyrir mjólk umfram greiðslumark munu því frá 1. janúar n.k. nema 86,16 kr. á lítra, þ.e. fullt afurðastöðvarverð eins og það er í dag, að frádregnu innvigtunargjaldi (35 kr. á lítra) eða 51,16 kr. á lítra. Þetta er miðað við meðalmjólk með 4,09% fitu og 3,30% prótein.

Rétt er að ítreka að stjórn Auðhumlu mun endurskoða greiðslur fyrir umframmjólk mánaðarlega.

/gj